PERSPECTA

News from every angle

ruv

Ingebrigtsen ekki með í 1500 metra hlaupinu á EM

By Fréttastofa RÚV

Jakob Ingebrigtsen verður ekki meðal keppenda í 1.500 metra hlaupi á Evrópumótinu í Birmingham og allt bendir til þess að hann einbeiti sér eingöngu að 5.000 metra hlaupinu í endurkomu sinni. Norski hlauparinn hefur orðið Evrópumeistari í bæði 1.500 og 5.000 metrum á þremur mótum í röð, en þrátt fyrir að hafa náð lágmarki í 1.500 metra hlaupinu er hann ekki skráður sem þátttakandi. Fyrr í vikunni staðfesti Ingebrigtsen að hann tæki þátt á EM, þótt hann hafi ekki keppt á þessu tímabili vegna m...