ruv
Fólkið með ungana mögulega erlendir fuglasafnarar
By Fréttastofa RÚV
Fuglafræðingur sem aðstoðaði lögregluna á Austurlandi við greiningu ríflega 100 eggja sem erlent par hugðist flytja af landi brott segir litla von um að eggin myndu klekjast. Fólkið hafi líklega ætlað sér að halda fuglunum lifandi hjá sér. Lögreglan á Austurlandi handtók í síðustu viku par sem var á leið úr landi með Norrænu, með fimm lifandi hrossagauksunga og og rúmlega hundrað egg frá villtum íslenskum fuglum, sumum alfriðuðum. Eggin voru geymd í sérútbúnum hitatöskum og fundust við leit t...