ruv
„Verðbólgan vonandi búin að toppa“
By Fréttastofa RÚV
Verðbólgan gæti verið búin að ná sínum hæstu hæðum og tekið að minnka á næstunni. Þetta sagði Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, í hádegisfréttum RÚV. Una sagði að varasamt væri að lesa mjög mikið í einstakar mælingar. Hún taldi þó jákvæð teikn í verðbólgutölum dagsins. „Ef fram heldur sem horfir er verðbólgan vonandi búin að toppa núna og þá sjáum við þessa hjöðnun halda áfram.“ Minni verðbólga gæti haft meiri áhrif. „Hún gæti orðið til þess að Seðlabankinn þurfi ek...