ruv
Algjört partý hjá Kanada í metsigri en þó leiðindaratvik
By Fréttastofa RÚV
Kanadamenn sýndu allar sínar bestu hliðar í Vancouver í kvöld er þeir unnu 6-0 sigur á lánlausum Katörum. Kanada hreinlega tjaldaði í teig Katar og setti nýtt met. Aldrei áður hefur lið frá CONCACAF, knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku, skorað sex mörk á heimsmeistaramóti. Sigurinn var þó dýrkeyptur þar sem lykilmaðurinn Ismael Kone fór út af vegna meiðsla. Við fyrstu sýn leit þetta illa út og talið er að hann verði ekki meira með á mótinu. Assim Omer Madibo fékk beint rautt fyrir bro...