ruv
Tilkynnt um tvær stórfelldar líkamsárásir í Reykjavík
By Fréttastofa RÚV
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra einstaklinga í dag vegna gruns um tvær stórfelldar líkamsárásir. Lögregla rannsakar bæði atvik, en þau eru talin óskyld. Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðarlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur í tilkynningu að lögreglan hafi sinnt útkalli í póstnúmeri 105 í dag vegna stórfelldrar líkamsárásar sem þar átti sér stað. Þrír eru grunaðir og málið í rannsókn. Þá barst lögreglustöð 4 einnig tilkynning um slagsmál...