ruv
Blautt og hvasst víða um land
By Fréttastofa RÚV
Útlit er fyrir nokkuð vætusamt veður um helgina. Í nótt og í fyrramálið gengur í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Í dag er von á suðaustlægri átt og rigningu um landið sunnan- og vestanvert. Þó verður úrkomulítið um tíma eftir hádegi á suðvesturhorninu. Fyrir norðan og austan verður að mestu þurrt og gæti hiti náð allt að 17 stigum. Seinna í kvöld byrjar hins vegar að rigna þar. Í nótt og í fyrramálið gengur í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Mesta hvassviðrið verð...