ruv
Salmonellufaraldur úr pakkanúðlum í Evrópu
By Fréttastofa RÚV
Salmonellusmit í níu Evrópulöndum eru rakin til pakkanúðla. 80 tilfelli hafa komið upp víða í Evrópu, þar af tíu meðal danskra barna. Þetta kemur fram á vefsíðum Statens Serum Institut, Matvælastofnunar DTU og Matvælastofnunar Danmerkur. Danska ríkisútvarpið greinir frá. Þrjú dönsku barnanna urðu svo veik að leggja þurfti þau inn á sjúkrahús. Faraldurinn hefur komið upp í níu Evrópulöndum en það voru yfirvöld í Þýskalandi og Litáen sem ráku hann til neyslu á pakkanúðlum frá úkraínskum framlei...