ruv
Persnesk kvikmyndasaga: Íranska nýbylgjan
By Fréttastofa RÚV
Kolbeinn Rastrick skrifar: Kvikmyndasaga Írans hefst árið 1900 þegar þáverandi konungur Persíu, Mozaffar ad-Din Shah Qajar, lét hirðljósmyndara sinn, Mirza Ebrahim Khan Akkas Bashi, kaupa Gaumont-kvikmyndavél og kvikmynda ferð sína til Evrópu. Fyrsta kvikmyndahúsið var svo opnað í Íran árið 1904 í Teheran, tveimur árum áður en fyrsta bíóið hér á landi, Gamla bíó, var opnað. Þótt margir opinberir viðburðir hafi verið kvikmyndaðir og eitthvað framleitt af stuttum fréttakvikmyndum, tók kvikmynda...