ruv
Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í Dniester-ánni
By Fréttastofa RÚV
Stjórnvöld í Moldóvu hafa lýst yfir 15 daga hættuástandi á vatnasvæðinu í og við Dniester-ánni í Moldóvu vegna eldsneytismengunar. Talið er að eldsneyti hafi lekið í ánna þegar Rússar gerðu árásir á Dniester-vatnsaflsvirkjunina í Úkraínu 7. mars. Stjórnvöld í Úkraínu greindu fyrst frá menguninni þremur dögum síðar, þegar hennar varð vart nærri þorpinu Lyadova í Úkraínu. Mengunin barst með Dniester-ánni áfram inn í Moldóvu. Yfirvöld þar í landi hafa komið upp hreinsibúnaði og gefið út viðvaran...