PERSPECTA

News from every angle

ruv

Ógnaði börnum með hnífi og reyndi að ræna hlaupahjóli

By Fréttastofa RÚV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem ógnaði börnum með hnífi í tilraun til að ræna hlaupahjóli. Í morgunpósti lögreglu segir að hann hafi verið í mjög annarlegu ástandi. Frá klukkan 17 í gær og til klukkan 5 í morgun rötuðu 69 verkefni á borð lögreglu. 8 gistu fangageymslur í morgunsárið. Lögreglunni barst tilkynning um mann sem stundaði sjálfsróun í runna fyrir framan ungmenni. Henni barst einnig tilkynning um par sem stundaði samfarir í sundlaug fyrir frama...