ruv
Hellisheiði lokuð vegna umferðaróhapps
By Fréttastofa RÚV
Umferðaróhapp varð á Hellisheiði fyrir skömmu og er vegurinn lokaður. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru viðbragðsaðilar á leið á staðinn. Hált er á veginum og skafrenningur. Fréttin verður uppfærð.