ruv
Bílstjórar BSO kveðja miðbæinn með trega
By Fréttastofa RÚV
Leigubílstjórar á Bifreiðastöð Oddeyrar kveðja gömlu leigubílastöðina í vikunni, eftir rúm 70 ár í miðbæ Akureyrar. Samningar náðust við bæjaryfirvöld eftir áralangar deilur en starfsfólkið segir óvissuna vera óþægilega. „Húsið er náttúrulega orðið gamalt og lúið en staðsetningin er eitthvað sem við eigum eftir að sjá virkilega eftir“, segir Lárus Páll Erlingsson, leigubílsstjóri og stjórnarmaður BSO. Bifreiðastöð Oddeyrar hefur verið við Strandgötu síðan 1955 og mörgum Akureyringum er hlýtt ...