ruv
SR sópaði Akureyringum og er Íslandsmeistari
By Fréttastofa RÚV
Skautafélag Reykjavík er Íslandsmeistari karla í íshokkí eftir að sópað Skautafélagi Akureyrar í úrslitaeinvíginu. SR vann einvígið 3-0 og leik kvöldsins 3-2. SA sópaði SR í úrslitaeinvíginu fyrir ári síðan þannig að Reykvíkingar náðu í kvöld fram hefndum. Viðtöl og myndefni úr leiknum birtast í kvöldfréttum sunnudagskvöld. Mikil spenna var allan fjórða leikhlutann en SR komst í 3-0 eftir 27 mínútna leik. Alex Máni Sveinsson kom heimamönnum yfir í Skautahöllinni í Laugardal á 12. mínútu. Axel...