ruv
Lítið grisjað í frumskógi bílastæðaappa
By Fréttastofa RÚV
Potturinn er brotinn í innheimtu bílastæðamála, sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í viðtali við RÚV í ágúst 2025. Afleiðingin væri frumskógur fyrir neytendur sem ættu erfitt með að átta sig á hvar og hvernig hægt væri að greiða. Skerpa þyrfti á upplýsingagjöf og setja ramma um innheimtu. „Neytandinn þarf að vita hvert verðið er fyrir fram, hver þjónustugjöld eru og hver möguleg vanskilagjöld eru, hvenær þau falla og hvernig á að greiða þetta. Og það er pottur brotinn, möguleg...