morgunbladid
Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit

„Menn eru komnir með fiðring enda er þetta ekki bara lengsta heldur eina pásan sem hljómsveitin hefur tekið frá því hún var stofnuð árið 1988,“ segir Brynjólfur Brynjólfsson, gítarleikari eyfirsku þjóðlagapönkrokkhljómsveitarinnar Helga og Hljóðfæraleikaranna, sem fram kemur á tónleikum á Græna hattinum á Akureyri á þriðjudagskvöldið.