ruv
Keppnum í Bahrein og Sádí Arabíu aflýst
By Fréttastofa RÚV
Formúla 1-keppninni í Jeddah í Sádí Arabíu 20. apríl 2025.EPA / ALI HAIDER Keppnum í Formúlu 1-kappakstrinum í Bahrein og Sádí Arabíu hefur verið aflýst vegna ótryggs öryggisástands í Mið-Austurlöndum. Keppnirnar áttu að fara fram 12. apríl í Manama í Bahrein og í Jeddah í Sádí Arabíu 19. apríl næstkomandi. Þessi ákvörðun mun hafa þó nokkur áhrif á tekjur keppnisliða og Formúlu 1-kappakstursins, en löndin greiða yfir 100 milljónir breskra punda fyrir að halda keppnirnar. Greiðslurnar skiptast...