PERSPECTA

News from every angle

ruv

Mikill hiti á fyrstu íslensku eldpiparhátíðinni

By Fréttastofa RÚV

Áhugi á eldpipar hefur aukist á Íslandi síðustu ár og því tóku tvær vinkonur sig saman og bjuggu til fyrstu íslensku eldpiparhátíðina, Reykjavík Chilli Festival, sem haldin var í Gamla Bíói í dag. Það eru þær Þórey Hafliðadóttir og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir sem standa að baki hátíðinni. „Mig langaði í rauninni bara að prófa þetta og síðan plataði ég hana Kristínu með mér í þessa vitleysu,“ segir Þórey. Á hátíðinni var að finna íslenskar eldpiparafurðir á borð við sultur, sósur og jafnvel í...