ruv
Björgunarskipið Kristrún á Bjargi sótti fiskibát eftir að leki kom að honum
By Fréttastofa RÚV
Kristrún á Bjargi, björgunarskip Björgunarfélags Akraness, kom með fiskibát í togi til hafnar á Akranesi á tíunda tímanum í kvöld. Einn af liðsmönnum Björgunarsveitar Akraness um borð í Kristrúnu.Aðsend / Björgunarfélag Akraness Björgunarskipið var kallað út um klukkan sex eftir að leki kom að vélarrúmi bátsins um þrettán sjómílur, eða rúma 24 kílómetra, vestur af Akranesi. Um klukkustund síðar var Kristrún komin að fiskibátnum. Lekinn var stöðvaður og bátnum komið í tog, að því er segir í ...