ruv
Ís brotnaði undan tjaldi skíðafólks á Helsingjabotni
By Fréttastofa RÚV
Þýskt par komst í hann krappan í Helsingjabotni í vikunni. Finnska ríkisútvarpið YLE greinir frá. Fólkið hafði farið á skíðum frá Oulu í Finnlandi og ætlaði sér að skíða yfir frosinn Helsingjabotn yfir til Luleå í Svíþjóð. Þau gistu í tjaldi á leiðinni en um nóttina tók ísinn að brotna upp og þau misstu nær allan búnaðinn sinn í hafið. Þau náðu að koma sér yfir á tryggari ís og senda út neyðarkall. Björgunarflugvél fann þau nokkrum klukkustundum síðar þrátt fyrir að aðstæður væru krefjandi ti...