PERSPECTA

News from every angle

ruv

Árekstur og bílar utan vegar á Hellisheiði og vegurinn lokaður í báðar áttir

By Fréttastofa RÚV

Vegurinn um Hellisheiði er lokaður vegna umferðaróhappa. Minnst tveir bílar lentu saman og fleiri bílar enduðu utan vegar skammt frá brekkunni við skíðaskálann í Hveradölum. Mjög slæm akstursskilyrði eru á heiðinni, hálka og skafrenningur. Lögregla er komin á vettvang og vegurinn verður lokaður á meðan unnið er þar. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að enn sé ekki vitað um alvarleg slys á fólki. Hægt er að komast um Þrenglsin en mikill skafrenningur er á sv...