PERSPECTA

News from every angle

ruv

Rafmagni komið aftur á kjarnorkuverið í Zaporizhzhia

By Fréttastofa RÚV

Kjarnorkuverið í Zaporizhzhia, sem Rússar lögðu undir sig í innrásinni í Úkraínu 2022, er komið aftur inn á raforkunet Úkraínu, þremur dögum eftir að það datt út eftir árás Rússa. Viðgerðarmenn komust að verinu eftir að tímabundnu vopnahléi var komið á á svæðinu, að því er Alþjóða kjarnorkumálastofnunin segir í tilkynningu. Verið gekk á meðan á dísilknúnum rafstöðvum til að kæla kjarnakljúfana. Engrar aukinnar geislunar hefur orðið vart í nágrenni versins. Zaporizhzhia liggur á víglínunni mi...