PERSPECTA

News from every angle

ruv

Litlar breytingar hjá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi

By Fréttastofa RÚV

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi samþykkti í morgun einróma framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í framhaldinu var hann kynntur í forrými Salarins í Kópavogi. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri er oddviti listans og bæjarfulltrúar eru í næstu þremur sætum.