PERSPECTA

News from every angle

ruv

Sveik tæplega 300 þúsund krónur út úr eldra fólki í Árbæ

By Fréttastofa RÚV

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikahrappi sem falaðist eftir styrkjum fyrir góðgerðarsamtök á fölskum forsendum í Árbænum í dag. Í tilkynningu lögreglu segir að maðurinn hafi gefið sig á tal við eldri borgara og leitast eftir því að fólkið styrkti ótilgreint málefni um 2.000 krónur. Maðurinn vildi ekki taka við peningaseðlum og notaði símann sinn sem posa. Fólkið féllst á að styrkja málefnið og kom þá í ljós að úttektin nam tvö þúsund evrum, upphæð sem samsvarar tæpum 300.000 krón...