ruv
Undurfagur ævintýraheimur Laufeyjar
By Fréttastofa RÚV
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir heillaði aðdáendur sína á öllum aldri á tvennum tónleikum í Kórnum um helgina. Sviðsmyndin á tónleikunum minnti á ævintýraheim og tónleikarnir voru sannkölluð veisla fyrir augu og eyru, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Arnór Fannar Rúnarsson, tökumaður á RÚV, tók á tónleikunum í gærkvöld. Alls mættu um átta þúsund gestir hvort kvöldið. Tónleikarnir eru með stærstu tónleikum sem haldnir hafa verið í Kórnum, en átta gámar af búnaði voru fluttir til l...