ruv
Erlendum námsmönnum sett strangari skilyrði
By Fréttastofa RÚV
Alþingi samþykkti í dag að herða skilyrði fyrir dvalarleyfi erlendra nema með breytingum á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Með breytingunni ber erlendum nemum að sýna reglulega fram á námsárangur, fjölskyldusameining þeirra takmarkast við maka og börn og dvalarleyfi vegna atvinnuleitar að námi loknu styttist í úr þremur árum í 18 mánuði. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að með breytingunni verði framkvæmdin færð nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlö...