ruv
Vilja finna leiðir til að tryggja stöðugt orkuframboð í skugga styrjaldar
By Fréttastofa RÚV
Olíuskortur vegna lokunar Hormússunds hefur gríðarleg áhrif á Asíu-Kyrrahafssvæðið að sögn japanska forsætisráðherrans Sanae Takaichi. Hún sagði eftir fund með Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, að ríkin tvö hygðust tafarlaust finna leiðir til að tryggja stöðugt orkuframboð. Um fimmti hluti þeirrar olíu sem heimurinn notar fer um Hormússund og Asíuríki kaupa áttatíu af hundraði þess. Leiðtogarnir tveir sammæltust einnig um aukið varnar- og efnahagssamstarf og viðskipti með jarðefni ...