ruv
„Þessi munur er sláandi“
By Fréttastofa RÚV
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir verðmun á loðnu á Íslandi og í Færeyjum sláandi. Í svari ráðherra við fyrirspurn Eydísar Ásbjörnsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, kom fram að meðalverð á landaðri loðnu til frystingar væri þrefalt hærra í Færeyjum en á Íslandi. Meðalverð hérlendis er rúmlega 80 krónur en 250 krónur í Færeyjum. Ráðherra segir það viðvarandi verkefni að þjóðin fái sanngjarnan hlut af raunverulegu aflaverðmæti. „Þá liggur það bara fyrir að þessi munur e...