ruv
Knicks er NBA-meistari
By Fréttastofa RÚV
New York Knicks er NBA-meistari í körfubolta í fyrsta sinn frá árinu 1973 eftir sigur á San Antonio Spurs í fimmta leik úrslitaeinvígisins í nótt, 94–90. Liðið tryggði sér þar með fjórða sigur sinn. Knicks-liðið var um tíma sextán stigum undir. Fyrir síðasta leikhlutann var liðið níu stigum undir. Jalen Brunson var allt í öllu hjá Knicks og skoraði 45 stig. Í leikslok var hann útnefndur leikmaður úrslitaeinvígisins (e. MVP). „Þetta er allt sem mig hefur dreymt um,“ sagði hann tárvotur í leik...