ruv
Mikil vinna skýrir háu launin
By Fréttastofa RÚV
Mjög mikil vinna flugstétta, lækna og framhaldsskólakennara hjá ríkinu er ástæða þess að margir í þessum stéttum eru í efstu sætum á launalista opinberra starfsmanna, segja forsvarsmenn þeirra. Rúmlega 2000 ríkisstarfsmenn fá meira en eina og hálfa milljón króna á mánuði í heildarlaun. Fjármála- og efnhagsráðherra sagði í fréttum í gær að tölurnar hafi komið honum aðeins á óvart. Nærri helmingur á listanum er heilbrigðisstarfsmenn. Þeirra efstir eru læknar á landsbyggðinni með mest rúmar sex ...