ruv
„Ekki fara í verslunina og stela þjónustunni“
By Fréttastofa RÚV
Það vakti mikla athygli í vor þegar Húrra Reykjavík lokaði öllum fataverslunum sínum. Þær höfðu verið í rekstri í 12 ár og voru með þeim vinsælustu hér á landi. Sindri Snær Jensson, annar stofnandi og eigandi Húrra, sagði í viðtali í Viðskiptablaðinu í apríl að allt hefði verið reynt til að halda áfram en að rekstrarumhverfið hefði versnað jafnt og þétt á undanförnum árum og það hefði orðið til þess að sjálfstæðum sérverslunum væri nærri ókleift að standa undir starfseminni. Óvenju mörg versl...