ruv
Viðbúnaður þegar villisvín vafraði inn í verslun
By Fréttastofa RÚV
Afgreiðslufólki húsbúnaðarverslunar í verslanamiðstöð í þýsku höfuðborginni Berlín brá nokkuð í brún í gær þegar villisvín vafraði þangað inn. Því hafði tekist að lauma sér gegnum rennihurðir miðstöðvarinnar sem er í Koepenick-hverfinu. Starfsfólk verslunarinnar forðaði sér út eftir að svínið tók að gramsa kröftuglega í vöruúrvalinu í hillunum. Heimsókn svínsins lauk á friðsamlegum nótum þótt fjöldi lögreglumanna og dýralækna hefði þyrpst á vettvang vopnaðir svæfingabyssum og öðrum búnaði. St...