ruv
Bandero ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði
By Fréttastofa RÚV
Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, var ekki með kveikt á staðsetningarbúnaði skipsins þegar það sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu á níunda tímanum í kvöld. „Áhöfn eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í eftirlitsflug um sunnanverða lögsöguna og kom auga á þetta skip sem þá var rétt ókomið inn í efnahagslögsöguna,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Áhöfnin á Bandero sagði að sjálfvirkur staðsetningarbúnaður sk...