ruv
Hernaðaraðgerðir í Íran kostað 25 milljarða Bandaríkjadala
By Fréttastofa RÚV

Hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hafa kostað ríkið um 25 milljarða hingað til. Þetta herma heimildir fréttastofu Reuters. Embættismaður úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna kom fyrir þingnefnd í dag og sagði að mestur hafi kostnaðurinn verið vegna vopnabúnaðar. Ekki fékkst upp gefið hvort þessi kostnaður fæli í sér tjón sem orðið hefur á herstöðvum í árásum Írana. Einungis þriðjungur Bandaríkjamanna segjist hlynntur stríðsrekstrinum.