ruv
Óformlegur fundur stjórnmálaklúbbs Evrópuleiðtoga hefst í dag
By Fréttastofa RÚV
Leiðtogar frá yfir fjörutíu Evrópuríkjum, EPC-klúbbnum svokallaða, hittast í armensku höfuðborginni Jerevan í dag. Þetta er fyrsti fundur klúbbsins í Kákasus. Armenar hafa undanfarið, undir forsæti Nikols Pashinyan, varfærnislega viljað losna undan áhrifum Rússlands og auka tengsl við önnur ríki Evrópu. Fulltrúar allra ríkja Evrópusambandsins og leiðtogar þess verða viðstaddir fundinn auk leiðtoga 21 ríkis til viðbótar. Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney er sérstakur gestur fundarins þa...