PERSPECTA

News from every angle

ruv

Hvetur ökumenn til að fara Þrengslin í stað þess að þurfa að bíða í langri röð við Ölfusárbrú

By Fréttastofa RÚV

Langar bílaraðir myndast oft, stundum alveg upp að Kögunarhóli á móts við Ingólfsfjall, þegar ökumenn og þeirra fólk í bílunum eru að fara á Selfoss eða lengra austur og er tappinn alltaf við Ölfusárbrú. Það sem tefur líka er að það má aðeins eitt þungt ökutæki vera á brúnni í einu vegna þess hversu gömul og lúin hún er orðin. Oft þarf að bíða í 15 og jafnvel upp í 30 mínútur eftir að komast yfir brúna. Hvað segir bæjarstjóri Árborgar, Bragi Bjarnason, um málið? „Við verðum að sýna þolinmæði ...