ruv
Stórt hrun úr Reynisfjalli úr minnst 100 metra hæð
By Fréttastofa RÚV
Mikil jarðvegsfylla hefur fallið úr Reynisfjalli í Reynisfjöru, austan við Hálsanefshelli. Þangað kemst enginn eins og er vegna landbrots. Hrunið sést illa úr fjörunni, vegfarendur höfðu tekið eftir stórum hnullungum í sjónum sem líklega höfðu fallið úr fjallinu. Þórir Kjartansson býr í Vík og hefur fylgst með fjörunni í tugi ára – hann skoðaði hrunið með dróna í gærkvöldi. „Og þá blasti þetta við. Það hefur hrunið þarna gríðarlega mikil fylla úr bjarginu fast austan við hálsanefið. Það kanna...