ruv
„Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta – svo gerir maður bæði“
By Fréttastofa RÚV
Til er sjoppa úti á landi sem nefnist Baunin og er uppáhaldsstaður unglinganna í bænum. Á þeim ímyndaða stað gerist útvarpsleikhúsið Baunin í leikstjórn Maríu Reyndal, verki sem nær allur ungleikarahópur landsins tekur þátt í. Leikritið gerist fyrir vestan í kringum aldamótin. Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan heldur er þar líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni. Þau eru sp...