ruv
Von á hellidembum og jafnvel eldingum
By Fréttastofa RÚV
Dálítil lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi gefa fremur hæga norðanátt á landinu í dag. Það verður skýjað að mestu á norðan- og austanverðu landinu og lítilsháttar væta öðru hvoru, en annars víða bjartviðri og stöku skúrir eftir hádegi, jafnvel hellidembur á stöku stað. Það verður bjart með köflum á vestanverðu landinu, en stöku skúradembur síðdegis og jafnvel eldingar, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun verður áfram norðlæg átt, víða gola eða kaldi, en strekkin...