morgunbladid
Vaknaði við minka í garðinum

Reynir Finndal Grétarsson, athafnamaður og bóndi á Helgadal í Mosfellsdal, vaknaði í morgun við mink í garðinum hjá sér. Þegar hann fór að líta betur í kringum garðinn sá hann að hið minnsta átta minkar voru komnir í garðinn.