ruv
Barcelona í úrslitaleikinn sjötta árið í röð og Glódís úr leik
By Fréttastofa RÚV
Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir fór fyrir liði Bayern München þegar liðið sótti Barcelona heima í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. 1-1 stóð hjá liðunum eftir fyrri leikinn fyrir viku. Barcelona hefur leikið til úrslita í Meistaradeildinni undanfarin fimm ár og unnið þrisvar. Það var því við ramman reip að draga hjá Glódísi Perlu og félögum, sem hafa aldrei komist í úrslit og raunar aldrei í undanúrslit áður. Barcelona komst yfir á 13. mínútu þ...