ruv
Íranar hóta árásum á Bandaríkjaflota
By Fréttastofa RÚV
Írönsk stjórnvöld ætla ekki að láta viðgangast að bandarísk herskip fylgi flutningaskipum í gegnum Hormússund. Herstjórn Írans lýsti því yfir í morgun að ráðist yrði á öll erlend herskip sem nálguðust Hormússund eða reyndu að komast þar í gegn. Þetta sögðu Íranar að ætti sérstaklega við um bandarísk herskip. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að herfloti Bandaríkjanna myndi tryggja siglingu þeirra skipa sem hafa orðið innlyksa á Persaflóa eftir að stríðið í Miðausturlöndum hófst...