ruv
Aukin samstaða um Úkraínu en tekist á um næstu fjárlög Evrópusambandsins og afstöðuna til Kína
By Fréttastofa RÚV
Leiðtogafundurinn sem hófst í eftirmiðdaginn í dag verður sögulegur að vissu leyti. Þetta verður í fyrsta sinn í langan tíma sem ályktanir fundarins um Úkraínu verða samþykktar af öllum aðildarríkjunum tuttugu og sjö; það kemur auðvitað til vegna þess að Viktor Orban er ekki lengur á svæðinu, heldur Peter Magyar, nýr forsætisráðherra Ungverjalands sem hingað er kominn á sinn fyrsta leiðtogafund og hefur sett sér það markmið að bæta samskipti ungverskra stjórnvalda við Evrópusambandið. (Það s...