ruv
Yfir fjórtán hundruð hafa fundist látin
By Fréttastofa RÚV

Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki sem er fast í húsarústum eftir jarðskjálftana á miðvikudag. 1.430 hafa fundist látin en þúsunda er enn saknað. Um þrír sólarhringar eru síðan skjálftarnir tveir riðu yfir og íbúar eru afar ósáttir við það hversu hægt björgunarstörfum miðar. Margir grafa með höndunum til að ná til ástvina í rústunum. Að minnsta kosti tuttugu alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að ...