ruv
Ein versta hitabylgja sem dunið hefur yfir Evrópu
By Fréttastofa RÚV
Evrópubúar eru að kikna undan skæðri hitabylgju sem geisað hefur dögum saman og ekkert útlit fyrir að ástandið lagist að ráði fyrr en í fyrsta lagi á sunnudag. Þangað til munu um eða yfir 150 milljón manns búa við 35 stiga lofthita eða þaðan af hærri, og mikinn loftraka að auki. Þetta á ekki síst við í stórborgum og útlit er fyrir að þetta muni valda íbúum um 400 borga álfunnar meiri hitaáraun en staðfestar sögur fara af , en með hitaáraun er átt við álag af samspili hita og raka á líkama fól...