ruv
Tveir tveggja bíla árekstrar og bílar utan vegar á Hellisheiði
By Fréttastofa RÚV
Vegurinn um Hellisheiði var lokaður í á aðra klukkustund vegna umferðaróhappa og fjölda bifreiða sem lentu utan vegar. Tveir tveggja bíla árekstrar urðu skammt frá skíðaskálanum í Hveradölum á öðrum tímanum, samkvæmt lögreglu, og fréttamaður RÚV sem er á vettvangi segist hafa séð minnst átta bíla utan vegar. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir þrjá hafa verið flutta til skoðunar á sjúkrahús. Hann segir björgunarsveitir mættar á staðinn til að aðstoða vegfare...