ruv
Ný innisundlaug á Akureyri opnuð í sumar
By Fréttastofa RÚV
Ný innisundlaug í Sundlaug Akureyrar verður opnuð á næstu vikum, segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Nýja laugin er uppfærsla á gömlu innilauginni sem var um 70 ára gömul. Gísli segir allt tilbúið en nú þurfi bara að setja vatn í nýju laugina og prófa hana. Síðustu tvær vikur hafi staðið til að fylla laugina en sumarfrí iðnaðarmanna hafi tafið ferlið aðeins. „En þegar þetta er búið að taka tvö ár þá skipta vikur ekki miklu máli,“ segir Gísli. Framkvæmdirnar hafa gen...