ruv
Er frjáls ferða sinna í bili og ætlar að áfrýja
By Fréttastofa RÚV
Dómur féll í Edition-málinu svokallaða í dag. Ming Ting Mancel hlaut tólf ára fangelsisdóm. Hún var ákærð fyrir manndráp í samverknaði við eiginmann sinn og brot í nánu sambandi. Forsendur dómsins liggja ekki fyrir þar til hann hefur verið birtur. Ming Ting Mancel, sem var dæmd í tólf ára fangelsi í dag, hyggst áfrýja dómnum til Landsréttar. Mancel yfirgaf dómsalinn að uppkvaðningu lokinni, hvorki í gæsluvarðhaldi né farbanni. Verjandi Mancel, Ómar Örn Bjarnþórsson, segir dóminn þyngri en h...