ruv
Fugl flaug á línu og olli rafmagnsleysi
By Fréttastofa RÚV
Rafmagnslaust varð milli Kirkjubæjarkluausturs og Víkur rétt fyrir klukkan eitt. Starfsmenn RARIKs voru fljótir að gera við bilunina og tíu mínútum síðar var rafmagn komið á aftur. Samkvæmt upplýsingum frá RARIK mun fugl hafa flogið á flutningslínu og valdið rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust varð á grænmerkta svæðinu.RARIK