ruv
Segja fátt nýtt í húsnæðispakka stjórnvalda
By Fréttastofa RÚV
Til stendur að byggja allt að 1.400 íbúðir á næstu árum samkvæmt húsnæðispakka sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Húsin verða byggð á ríkislóðum í Reykjavík og aðgerðirnar eru liður í áformum stjórnvalda um að skapa jafnvægi á fasteignamarkaði. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi segja þessar aðgerðir bera keim af komandi kosningum. „Þetta er meira af því sama. Þetta gerist alltaf fyrir kosningar. Þá er nýtt húsnæði kynnt á glærum. Oft eitthvað sem var búið að kynna áður og væntingar u...