ruv
„Þá verð ég bremsulaus og flýg út í vatnið“
By Fréttastofa RÚV
Betur fór en á horfðist í Sindratorfærunni á Hellu um helgina. Einn keppendanna, Gunnar Guðjónsson, hvolfdi bíl sínum ofan í hyl og var á kafi í vatni í 19 sekúndur en öryggisbúnaður kom í veg fyrir að ekki fór verr. Atvikið varð í lokabraut keppninnar. Það var tímaþraut og áttu keppendur að snúa við enda brautarinnar og bruna niður ána. Þegar kom að Gunnari bilaði bíllinn hins vegar og út í ána þaut hann og á hvolf. „Þá átta ég mig á því að þetta er að fara að gerast“ „Bíllinn festist í botn...